Fréttir

Nýju íbúðirnar í Arnarhlíð

Íbúðirnar eru þrjár, ein stúdíóíbúð, ein tveggja herbergja og ein fjögurra herbergja. Allar með sér stæði í bílgeymslu. Íbúðirnar eru allar staðsettar í Arnarhlíð 6, í rétt við Landspítalann og örstutt í útivistarperlur eins og Öskjuhlíðina, Nauthólsvík og í göngufæri við miðbæinn.

Stúdíóíbúðin er 48 fm. með góðri 17 fm. verönd til vesturs. Íbúðin skiptist í stofu, gott fullbúið eldhús með öllum búnaði. Svefnpláss fyrir þrjá í samliggjandi svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og stöku rúmi. Gott baðherbergi með þvottavél og þurrkara.

2ja herbergja íbúðin er 66 fm. með einu svefnherbergi og góðri 28 fm. verönd til vesturs. Íbúðin skiptist í stofu, gott fullbúið eldhús með öllum búnaði. Svefnpláss fyrir fjóra í svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og koju. Gott baðherbergi með þvottavél og þurrkara.

Fjögurra herbergja íbúðin er 127 fm. með góðri 33 fm. verönd til vesturs. Íbúðin skiptist í stóra stofu, borðstofu með 10 manna borðstofuborði, gott fullbúið eldhús með öllum búnaði. Inn af eldhúsi er þvottahús með þvottavél og þurrkara. Þrjú svefnherbergi, eitt með tvíbreiðu rúmi og barnarúmi, eitt með þremur stökum rúmum og þriðja með tvíbreiðu rúmi með koju yfir ásamt koju, svefnpláss þar fyrir fimm. Alls er svefnpláss fyrir 10 í íbúðinni auk ungbarns. Gott baðherbergi með stórri sturtu.

Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta.
Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú samþykkir það.