Orlofshús

Combined ShapeCreated with Sketch.

Ölfusborgir 23

Bústaðurinn er 55 fermetrar, 3 nett svefnherbergi. Tvíbreytt rúm í einu og kojur í hinum tveimur. Þvottavél og uppþvottavél í eldhúsi sem er með öllum heimilistækjum eins og í fullbúnu eldhúsi. Húsið er með tveimur setustofum og borðstofu, vel búið eldhúsáhöldum og húsbúnaði. Heitur pottur og grill eru á verönd ásamt garðhúsgögnum. Dýrahald er bannað.
Að sjálfsögðu eru reykingar og veip bannað innandyra og óheimilt er að framselja leigu til annarra. Vinsamlega lesið umgengnisreglur sem eru birtar hér á síðunni og umgengnisreglur á sumarhúsasvæðinu varðandi bílaumferð og annað.

1

Umgengnisreglur

Ágætu félagsmenn
Því miður hefur borið á því undanfarin misseri að illa hefur verið skilið við sumarhús og íbúðir félagsins. Því viljum við ítreka við ykkur að þrífa vel og skilja vel við húsnæðið við brottför, jafnvel þó aðeins sé gist eina nótt. Mikilvægt að fjarlægja öll matvæli bæði úr skápum, ískáp og frysti bið brottför. Yfirleitt er hægt að kaupa brottfararþrif en panta þarf þau með amk. dags fyrirvara.

Einnig hefur borið á því að fólk setji ekki lak á rúmin eða setji ekki lín utan um sængurföt og kodda sem er ekki ásættanlegt. Hægt er að leigja sængurföt og handklæði hjá umsjónarmanni en það þarf að gera með amk. dags fyrirvara.
Ef félagsmaður kemur að húsi eða íbúð óhreinu þarf að tilkynna það strax til umsjónarfólks en símanúmer þess eru á leigusamningi, helst að taka myndir sem lýsa ástandinu. Látið okkur einnig vita er þið komið aftur til Eyja.

Meti umsjónarmaður sem svo að ekki hafi verið þrifið nægjanlega og eftir atvikum ef ekki næst í umsjónarmann er fólk kemur að slæmum viðskilnaði og myndir sýna slæman viðskilnað, áskiljum við okkur rétt til að innheimta kr. 25.000 í þrifagjald.
Látið okkur endilega vita ef það vantar búnað í húsin því félagið vill bjóða upp á góðar og velbúnar leigueiningar sem eru okkur félagsmönnum til sóma, og eins og best gerist innan verkalýðshreyfingarinnar.

Góða ferð og eigið ánægjulega dvöl í húsum okkar allra.

Hafðu samband á skrifstofu í síma 481-2600 ef áhugi er á leigu.

Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta.
Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú samþykkir það.