Fréttir

Félagsmenn Drífanda er vinna hjá Vestmannaeyjabæ og Hjallastefnunni

Í byrjun febrúar mun Drífandi greiða út úr félagsmannasjóði til félagsmanna er vinna hjá Vestmannaeyjabæ og Hjallastefnunni.

Til að það sé mögulegt þurfum við að hafa bankaupplýsingar félagsmanna. Þeir sem fengu greitt á síðasta ári og hafa ekki breytt bankareikningum sínum munu fá greitt inn á þá.

En hafi félagsmaður breytt bankareikningi sínum eða telji að við höfum ekki upplýsingar um hann vinsamlega hafi sambandi við okkur fyrir mánaðarmót svo við getum komið greiðslum til skila, þetta á sérstaklega við um sumarstarfsfólk, afleisingafólk og þá sem nýbyrjaðir eru að vinna hjá ofangreindum aðilum. Hægt er að senda kennitölu og bankaupplýsingar á drifandi@drifandi.is eða hringja í okkur í  síma 481 2600.

Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta.
Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú samþykkir það.