Frá upphafi hefur Drífandi lagt metnað í að hafa orlofseignir félagsins eins vel búnar og mögulegt er. Félagið hefur lagt metnað í húsnæði og húsgögn ásamt öðrum aðbúnaði er snýr að félagsmönnum. Enda eiga félagsmenn það svona sannarlega skilið því framlögin í orlofssjóð félagsins sem stendur undir kostnaðinum, er afrakstur vinnu þeirra.
Orlofseignirnar eru sameign okkar allra og ber okkur að ganga vel og af virðingu um þær. Borið hefur á því í auknum mæli að illa sé þrifið eftir dvöl í þeim og umgengni hjá sumum hefur verið slæm svo ekki sé fastar að orði kveðið. Hægt er að kaupa þrif um leið og eignirnar eru leigðar ( Utan Ölfusborga) eða hafa samband við umsjónarmann ef aðstæður breytast.
Ef misbrestur verður á viðskilnaði á orlofseignunum verður innheimt þrifagjald og félagsmaðurinn útilokaður frá leigu á orlofseignunum um óákveðinn tíma. Ef komið er að eignunum óþrifnum eða hlutir í ólagi skal þegar haft samband við umsjónarmann sem tilgreindur er á leigusamningi. Mun umsjónarmaður þá gera ráðstafanir, í samvinnu við viðkomandi.