Fréttir

Styttist í nýja bústaðinn

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er fyrri bústaðurinn af tveimur kominn vel á veg. Eftir er að setja á hann álklæðningu, verönd meðfram langhliðinni og heitan pott ásamt því að ganga frá lóðinni.

Líklega verður bústaðurinn tilbúinn í október til útleigu. Í bústöðunum verða 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi annað með útgengi út á verönd að heita pottinum. Stór setustofa , eldhús og borðstofa með mikilli lofthæð.

 

Seinni bústaðurinn verður vonandi tilbúinn í janúar n.k. og verður hann eins nema það verður annar litur á gluggum, eldhúsinnréttingu og álklæðningunni sem kemur á hann að utan.

 

Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta.
Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú samþykkir það.